Auglýsing

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Street artist defaces bikini advertisement Funny Images, Art made with rocks! Funny Images, A very straightforward bumper sticker Funny Images, Derp in a swing Funny Images, If children’s drawings were made into toys Funny Images, Now THAT’S cosplay..

Aprílgabb? Nei!

01. apríl 2009 klukkan 23:29
Heldur langt síðan síðast verður að segjast en skólinn er farinn að taka frá mér dýrmætan skriftartíma. Verkefni á verkefni ofan. Allur andi hreinlega farinn úr manni síðustu daga þar sem maður nýtir allann sinn sköpunarkraft í að skrifa inngana og lokaorð og allt þar á milli. Andleysið getur hins vegar skýrst af því að ég fékk særingamann í síðasta partý.

Þar sem lög um réttindi líffæragjafa voru nú í kvöld samþykkt hef ég ákveðið að gefa úr mér allavegna eins og eitt líffæri. Ykkur gefst tækifæri til að óska eftir líffæri úr mér, því miður get ég einungis gefið milta, nýra eða hluta af lifri. Hin liffærin verða hugsanlega boðin út síðar meir. Heilan gef ég ekki frá mér strax þótt hann sé farinn til ára sinna og hjartað þarf ég helst til að getað elskað. Lifrin gef ég með fyrirvara um skorpu.

Kosningar á næsta leyti skoðanir manna á götunni breytast álíka hratt og Gléráin sem er gul, græn, rauð og blá eftir því sem á við. Halldór Blöndal orti nú einu sinni fallega um Gleránna.
Hver er þessi eina á
sem aldrei frýs,
gul og rauð og græn og blá og
gerð af SÍS?

Það getur verið gaman að fylgjast með flokkunum þessa stundina en flokksmenn vita ekki í hvern fótinn þeir eiga að stíga. Sjöllunum finnst Davíð enn vera maðurinn þrátt fyrir það að hann hrauni yfir flest alla flokksmenn á meðan Jóhanna dregur samfylkingarvagnin, sú hin sama á átti hugsanlega að ýta út úr flokknum fyrir að vera gamaldags. Um Steingrím Joð veit maður aldrei, um daginn segir hann að útkoma Icesave deilunnar sé gríðarlega góð og svo bakkar hann með það næsta dag. Frjálslyndiflokkurinn fær varla fylgi á meðan bassafermingadrengurinn styður en er samt á móti ríkisstjórninni.

Veit ekki í hvað stefnir hér á landi.

Var boðið á fund í dag en nennti ekki, hét eitthvað G20 en ég nenni ekki til lundúna. Ég veit ekki einu sinni hvar á landinu það er.

1. apríl fór ekki framhjá einum né neinum. Allir göbbuðu alla. Mér tókst að gabba nokkra með því að segjast hafa hætt í skóla en það er víst ekki á dagskrá. Málið er auðvitað að gera þetta þegar klukkan er yfir miðnætti þá finnst fólki ekki vera kominn nýr dagur.

Annars er það að frétta að yfirritaður (eða var það undirritaður) er orðin stjórnarmeðlimur í félagi viðskiptafræðinema við Háskólan á Akureyri (titill sem fer á ferilskránna). Ljóst er að næsta ár verður stútfullt af viðburðum. Var kosin með rússneskrikosningu (þetta var hallelújasamkoma) meðstjórnandi þannig að ef þið hittið mig þá verðið þið að kalla mig háttvirtur meðstjórnandi.

Vinna. Ég er ekki kominn með vinnu. Einhver sem vill ráða öðlingspilt sem mig? Er ekki tilbúinn til módelstarfa þar sem notast er við feld, ég ósjálfrátt skvetti málningu á þá feldi sem ég sé. Ég er samt ekkert á móti slátrun dýra þetta er bara einhver kjækur. Auk þess get ég einungis verið módel í hlutastarfi sökum útlits en ég er einn heima en er samt ekki myndarlegastur hérna.

Tvífarar, það verða að vera tvífara. Tvífarar dagsins eru gítargoð mikil báðir tveir. Annars vegar eru við að tala um gítarleikara og annar söngvara grugg hljómsveitarinnar Alice in Chains sem hefur hlotið nafnbótina Riff Lord af einhverju rokkblaði sem heitir Metal Hammer. Jerry hefur í nokkurn tíma verið í miklu uppáhaldi hjá mér enda Alice in Chains stórgóð hljómsveit. Hinn er gítarblúsarinn Johnny Winter sem var einn af þeim flottari á sínum tíma. Johnny kom fram á sjónarsviðið afar ungur eða einungis 10 ára gamall með bróðir sýnum Edgar í sjónvarpsþætti og gaf hann út sýna fyrstu plötu 15 ára gamall. Johnny hefur spilað með Hendrix og Muddy Waters svo eitthvað sé nefnt. Það merkilegasta við hann er hins vegar það að hann er albinói, svona skjannahvítur kallinn. Greyið maðurinn er frá Texas svo hann hlýtur að hafa eytt löngum tíma inn í húsi. En hérna eru kumpánarnir:


 

Allt gengur sinn vanagang,
sökum kreppu ét ég þang.
Ég ét það sem úti frýs,
Aðallega villiketti, rottur og mýs.

Hilsen 
Trausti Sigurđur Hilmisson
4 athugasemdir

Babbabúí babbabúí

19. mars 2009 klukkan 00:19

Glæpamaður var dæmdur fyrir að stela dagatali, hann fékk 12 mánuði

Það er rétt ég byrja á skrýtlu.

Skjaldborgin er samkvæmt heimildarmönnum alveg að koma. Borgir eru sjaldnast reistar á einum degi allavegana ekki Rómarborg, þó reyndar var Dubai reist á einum degi en ég tel þó hana ekki með þar sem hún er klárlega byggð á sandi. Talandi um Róm þá er víst lítið fyrir karlpeninginn að gera þar sökum kvennvandræða, sem reyndar kannski skýrir afhverju þeir reynda við allar ferðakonunar sem þangað koma, en allar konurnar þar eru víst algjörar tíkur, en orðið rómantík er jú komin þaðan. 

Og já orðið skjaldborg er ekki í miklu uppáhaldi hjá mér. 

Ég hitti höfuðið á naglan þegar ég sagðist vera með nagla í höfðinu.

Dagar dagatalsins eru taldir. 

Niðurfærsla skulda er núna mest á tungum og vörum fólks og talar fólk tæpitungulaust um þessa varasömuleið. Umræðan um þessar niðurfærslur hefur gert það að völdum að eiturlyfjanotendur keppast hver við annan að kaupa sem mest af tvíburum og ásum og hvað sem þetta nú allt heitir þar sem þeir sjá sér það í sinni sprautuðu hendi að þeir fái dópskuldir sínar niðurfelldar og staðin að missa fingur eiga þeir sé það í vændum að missa kannski eins og nögl eða hár, sem er í raun engin refsing nema auðvitað sá hinn sami sé að reyna slá heimsmet í hárvexti eða naglavexti þá er það svakalega slæmt. 

Skólinn gengur sinn vanagang (það vita allir hvernig þeir sem búið er að vana ganga er það ekki?) Skýrslur, ritgerðir og kvartanir skrifaðar í gríð og erg og virðist sem kennurum gangi illa að sofa þannig að þeir brugðu á það ráð að láta nemendur sína skrifa nógu mikið og nógu leiðinlegt þannig að þeim gengi betur að sofna lesandi einhverja þurrustu texta utan Sahara eyðimerkurnarinnarminnarernunnarinn (vissi ekki hvernig greinirinn kæmu á orðið eyðimörk svo ég setti ti öryggis nógu mikið af þeim þannig að nóg er um að velja). Maður reynir að krydda upp á textan með öllum þeim klisju orðatiltækjum sem völ er á. Stundum vilja samnemendur mínir einnig gera það en stundum verður maður að stoppa þá af eins og einn sem ætlaði að setja í sameiginlega ritgerð nokkura setninguna "ganga blint í sjóinn" ég sagði bara hægan hægan félagi góður maður segir "gengur blint í sjóinn" ótrúlegt hvað sumir eru vitlausir.

Vinsælasta orð alnetsins þessa stundin er orðið fail..... ok einhverja hluti vegna byrjaði ég að skrifa þessa setningu og síðan man ég ekki hvernig ég ætlaði að botna þessa setningu, þannig að ég skrifaði aðeins meira í efnisgreininni að ofan í von um að ég myndu muna það, en neibb man það ekki, held að það sé svolítið kaldhæðnislegt því þetta er algjört fail. 

Datt í lukkupottinn, potturinn var því miður það stór að ég meiddi mig.  

Bönkum þeir beila og beila
Í fjármálum þeir feila og feila
Arðgreiðslur þeir greiða
Skattborgara þeir reiða

Hann sagði "lem hann,
bankastjóra Lehman"
Þeir létu bankann falla
Og þeir kalla sig stórkalla

Þeir eru ekki í því að blanda
sér vondan og hræódýran landa
Þeir sem fengu frá Granda
dágóðan arð og nú í gulli standa

Segjum það ráðherrar og ráðherfur.

Kv. Trausti 
 
Trausti Sigurđur Hilmisson
2 athugasemdir

Hvorki lönd né strönd

10. mars 2009 klukkan 00:14
Heldur sjór.........

Frambjóðendur halda áfram að lofa því að komist þeir til valda muni þau slá skjaldborg utan um heimilin og fá allt upp á borðið. Kosningaáróðursvélarnar eru að fara í fullt stím og eftir nokkra daga verður það þannig eins og fyrir flestar kosningar að allir flokkar lofa því nákvæmlega sama og hinir flokkarnir, svo að maður sér engan mun á flokkunum. Þeir munu allir stokka upp í kerfinu, slá skjaldborg um heimilin og fá allt upp á borðið.

Verkefnavika er búin að standa yfir í skólanum og mikið annríki er búið að vera, eins og að sofa og sitja í sófanum. Inn á milli eru síðan verkefni. Smá tími milli mjalta og messu kemst í þessi verkefni sem annars fer í svefn og hvíld. Einu sinni heyrði ég að það mikilvægasta fyrir námsmenn er að fá nægjan svefn, svo ég þori auðvitað ekki nema að sofa.

Skemmtileg veikindi eru búin að herja mig. Búið að byggjast hægt og örugglega frá því um síðustu viku og er núna vonandi í hámarki. Það stoppaði mig auðvitað ekkert við að fara á árshátíð háskólans. Þar var margt um manninn. Sporin voru að mestu leyti spöruð, það er að segja danssporin. Þó var auðvitað stíginn dans en þeir voru ekki margir. Undir lokin var líka hálsinn á mér nokkuð sár. 

Stjórnmálaryskingar halda áfram að eiga sér stað. Enginn flokkur veit neitt hvað hann er að gera en veit sem víst að næsti flokkur er að gera það rangt. Allir flokkarnir þykjast vera með sín mál á hreinu.

Held að þessi slappleiki í mér hafi áhrif á sköpunarkraft minn þar sem þessi færsla er með daprari hætti. Spurning um að ég hætti þá að skrifa, til að ekki skapist sú hætta að hættuleg skrif um siðhætti dvergapa hætti sér út fyrir efnið. Nei hættu nú alveg....

 Tvífarar dagsins eru Micheal Jackson eftirherman Justin Timberlake og leikarinn Ryan Phillippe. Í viðtali við mig sögðust þeir hinir hressustu með þessa viðurkenningu og að þeir myndu reyna að vinna saman í framtíðinni vegna þess. Nú er bara að bíða eftir að rétta handritið komi, þar sem þeir geti leikið bræður. Þessi dúett er talin það efnilegur að þeir geti jafnvel skákað hina íslensku bræður Hlyn og Marinó Sigurðssyni sem unnu leiksigur sem Bamm-Bamm í The Flintstones. Núna er bara að bíða og sjá.


 
Einn góðan veður dag
skal ég semja gott lag
Ætli það sé ekki gott ráð
Að gera það ekki í bráð.

Kv. að austan

ps. vill benda á það að ég er ekki fyrir austan
pss. svo virðist sem tæknin sé að stríða mér þar sem ég get ei sett inn mynd. Vonandi að það komist í lag sem fyrst. 
Trausti Sigurđur Hilmisson
2 athugasemdir

Skammt stórra högga

24. febrúar 2009 klukkan 23:40
Loksins líður ekki vika eða meira milli skrifa. Svona ótrúlega duglegur er ég.

Saltkjör og rjómi tuttugu þúsund kall, takk fyrir takk.

Þessa dagana er ég búinn að vera mjög óhefðbundinn, óíslenskur jafnvel, en þannig er mál með hárvexti að hvorki rjómabollum né saltkjöti er ég búinn að leggja mér til munns. Þetta óeirðarástand hefur mikið með það að gera að ég bý ekki lengur í foreldrahúsum. Þó verður að segjast að mér stóðst það til boða að gæða mér á saltkjöti og jafnvel baunum heima á nesinu fagra en þegar það er meistaradeildarleikur virðist færðin á milli AK-HAU versna mjög. Sem gerir það að verkum að ég leggst í það djúpt þunglyndi að eini kosturinn í stöðunni (0-0) er að fara á næsta pöbb að horfa á breiðtjald sem vill svo til að sýnir meistaradeildarleik sem ég auðvitað blóta í ösku.

Bendileikurinn heldur enn og nú síðast var það Davíð sem benti á einhvern annan en á undan því var það einhver sem benti á Davíð. Spurning um að koma þessum 40-50 manns sem er kreppunni að kenna fyrir í herbergi og láta þá spila Hver stal kökunni úr krúsinni, sá sem tapar tekur á sig ábyrgð og segist fullur iðrunar í sjónvarpsviðtali og allir fyrirgefa honum. Þá verður þetta skrýtna mál jafn dautt eins og latína, það er: dautt hjá öllum nema lögfræðingum. 

Sólin heldur áfram að hækka þrátt fyrir niðursveiflu. Ekkert nema gott um það að segja svo lengi sem þú ert ekki rauðhærður Albinói en ég geri ekki ráð fyrir að margir þeirra lesi þetta blogg en þó aldrei að vita. Fátt kemur mér í betra skap en þegar snjó tekur að leysa og það er glampandi sól en samt enn snjór nema á götum. Einungis lyktin af nýslegnu grasi kemur mér í betra skap. 

Auglýsi eftir peningum. Tilbúinn að borga fyrir réttu upphæðina.

Það voru einu sinni tveir dvergar sem þurftu báðir að fara útí búð, þeir skruppu saman.

Geimfarar nei ég meina tvífarar dagsins að þessu sinni eru ekki þeir þekktustu en þeir sem horfa gjarnan á breska þætti kannast kannski við smettið á þeim. Við erum að tala um velska gamanleikaran Rob Brydon og enska leikarann Ben Miller. Þó ég þekki ekki mikið til Ben þá er Rob í góðu uppáhaldi hjá mér en hann er tíður gestur hjá Stepen Fry í spurningaþáttunum QI.

 

Báðir virðast þeir unna sér vel í svarthvítu.

Ég læt hér fylgju fylgja, nei meina myndband fylgja en hér eru þeir kumpánar Rob og Ben að kynnast sjálfum sér betur í QI

 

olrætí þenn bæ bæ þenn

Austi 
Trausti Sigurđur Hilmisson
Bull | 1 athugasemd

Ţađ er komiđ ađ ţví

20. febrúar 2009 klukkan 00:02
Það er komið að því, það er komið að því. 

Hverju? ekki furða að þú spyrjir þig þeirrar spurningar. Það er komið að nýrri færsla. Ó já þú áttir ekki von á því. Ekki frekar en þú átt von á þér. Sem telst ólíklegt sért þú af kyni karla. Sért þú hins vegar kvenlegum kostum gædd gæti svo verið að þú eigir von á þér enda ekki von...
Þrátt fyrir vonleysi þjóðarinnar er lagið "gefum honum von" í flutningi Jóns nokkurs Gnarrs alltaf jafn vinsælt. Minntist ég á orðið von, ok einu sinni enn VON.

Von er öfugt nov bara svo þú vitir það. sem er eins og skammtöfun á nóvember. Eitt bragðversta ber sem ég hef smakkað. Hvert er bragðbesta berið spyr þú, auðvitað allsber.

Jæja burt með þetta vonar kjaftæði Trausti þú ert kominn á hálann ís í þeirri umræðu, eins og svelja á belli.... ég meina belja á svelli. Ég hef reyndar verið ötull talsmaður þess að það eigi að járna beljur til að þær losni við þennan stimpil sem þær bera á sér að vera lélegar á svelli. Þá er ég ekki að meina stimpilinn sem settur er á þær þegar þær eru slátraðar, ég er að tala um allt annan stimpil. Síðan dirfist yfirvöldum að rukka þær um stimpilgjald.... nei ok þessi var ekki fyndinn, enga hótfyndni hér.

Fyllibyttan Jón Runni var kenndur við runna.

Nýjasta æðið í dag er að spila við félagana í gegnum síma. Maður hefði heldið að það væri eitthvað magnað nýtt spil nei nei við erum bara að tala um 52 spil og eru stjörnur íslands farinn að spila spilið eins og Björn Jörundur Hundadagakonungur sem lagði fram ás en hinn sagði bara nei "legg tvistinn út og breyti í spaða". Annars vantar ekki peningana á bænum hjá Birni. Oft nefndur Stóri Björn, hann er búinn að vera í því síðustu ár að kaupa eignir hér og þar og við erum ekkert bara að tala um fasteignaland hér og þar heldur nokkrar stjörnur hér og þar en talið er að olíu sé þar að finna, að sögn Össurar. Jörundur skýrði þetta náttúrulega í höfuðið á sjálfum sér enda karlinn með mikið egó þessa dagana, sem ég reyndar veit ég ekki afhverju, kallast þessar stjörnur núna Stóri Björn.

Tvífara dagsins í dag eru þær stöllur Katy Perry og Zooey Deschanel. Kata þénar pening við að semja og flytja lög um að hún hafi kysst stelpu og hafa líkað það. Á með birtist dýragarðurinn (zoo þýðir dýragarður, svo ég er ekki að bulla) okkur á hvíta tjaldinnu,nei hún er ekki í starfandi í skuggaleikhúsi heldur eru hún leikkona og lék hún svo eftirminnilega í myndinni Já maður á móti skrípafésinu og atvinnugrettaranum Jim Carrey, sem er jú bróðir Mariauhaey Carrey (nokkuð viss að það er skrifað svona)

 

Eigum við ekki bara að segja það.

Kv. Treysteinn þröskuldur


 
Trausti Sigurđur Hilmisson
Engin athugasemd

Gjémli gjémli

15. febrúar 2009 klukkan 23:26
Virðist vera frasinn í dag.....

Langt síðan síðast lesandi góður. Svo langt síðan að margir myndu kalla það mjög langt. Sem er lengra en margt annað, sem er heldur mis langt. Lengra hef ég það ekki.

Ég hef ekki rita hér fögur orð frá því síðast og því orðið langt síðan það átti sér stað. Margt hefur gerst síðan þá en fyrst ber að nefna suðurferð sem reyndist háska ferð með aðeins meiru. Ferðin suður tók lengri tíman en maður á að vona og hélt ég í smá stund að ekki væri malbikað alla leið. Stoppað var á fleiri stöðum en ég hélt að væri til. Mér til mikillar undrunar eru til staðir sem heita Hreiðarvatnsskáli og Víðihlíð en þessa staði hef ég varla litið augum á. Veitingastjórar Hreiðarvatnsskálans er fólk með prinsipin á hreinu, og taka þau ekki í mál að þeim sem orðið er mál fái að losa um partýblöðruna án þess að greiða fyrir það helst að versla. Á Blönduósi, þið vitið þar sem Hrútey er, nægði ekki að stoppa einu sinni heldur þurfti að stoppa tvisvar en farið var í bæjarferð niður að ós þar sem vildi svo til að Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins eru með staðsetta verlsun þar sem ýmis varningur er í boði. starfsmönnum þar blöskraði það að við hefðum einungis skoðað úrvalið en engin sá sér hag í því að versla við þau. Þegar í Reykjavík var komið var hressleiki rútuferðinnar haldið áfram og voru veitingahús heimsótt og gáfum við öldurhúsum rausnarlega styrki.
Dagurinn eftir eða á föstudagurinn var tekinn snemma hjá mér og um áttleytið hélt ég niður á morgunverðarborð Hótel Cabin og fékk mér morgunverð en stóð ekkert annað í boði. Reyndar játa ég að ég lagði mig í smá stund í viðbót. Síðan um hádegi þá fórum við í vísindaferðir. Skoðuðum Seðlabankann, ekki var okkur mikið sýnt enda fengum við ekki einu sinni að fara innfyrir öryggishliðið heldur var okkur troðið í fundarsal sem er hjá andyrinu. Eftir það fórum við á Marel með smá stoppi á kaffihúsi á laugarveginum. Fínt að skoða þetta. Eftir það var auðvitað farið eitthvað út að borða áður en skemmt var sér um kveldið með tilheyrandi látum og dólgsskap. Á laugardaginn var síðan farið á vífilfell og kannað kókið. Og síðan auðvitað kannað næturlífið, við fórum síðan á sunnudagsmorguninn á morgunverðarborðið reyndar var sleppt því að sofa, slíkur var spenningurinn fyrir morgunverðinum.

 Allt í allt gríðarlega skemmileg ferð með vísindaferðum inn á milli. Reyndar fannst mér rútuferðin heim ekkert serstaklega spennandi en það er bara ég.

Skólinn gekk sinn vanagang (hvernig ganga þeir sem búið er að vana?) og síðan á föstudeginum núna síðast fékk ég heimsókn að sunnan en þar var á ferðinni frændi minn og hans föruneyti. Um kvöldið fór ég reyndar í sumarbústað ásamt fríðu fólki. Það er rétt það er hægt að nýta sumarhús á veturnar líka. Laugardagurinn var einn sá rólegasti í manna minnum en það fólk er einfaldlega minnislítið.

Annars hef ég það ekki neitt of lengra kannski aðeins.....

Einn brandari í boði leigubílstjóra einum sem skutlaði okkur í borginni: Vitið þið hvað getulausi lögreglumaðurinn var vanur að gera? handtaka konuna sína....

Tvífarar.
Hin nýrekni stjóri Chelsea Philip Scolari og hin geðþekki "ég vinn við að þykjast" Gene Hackman

 

Með kveðju Tryggvi

Ég meina Trausti 
Trausti Sigurđur Hilmisson
2 athugasemdir

Minn tími mun koma

02. febrúar 2009 klukkan 23:20
Virkaði allavegana fyrir Jóhönnu þannig að það hlýtur að virka ef ég segi það. Segjum það allavegana. Það er samt auðvitað hægara sagt en gert. Sem í fyrstu virðist vera mjög fljótt að gerast víst maður er sneggri að gera það en að segja, nema maður sé auðvitað með stam á háu stigi, en íslenskan er þannig í grasi gerð að hægara getur þýtt allt annað en hægara. Væri ekki auðveldara að sega það er auðveldara sagt en gert eða jafnvel hægara að segja auðveldara sagt en gert. Það er sannarlega hægara sagt en gert að lesa þessa torlesnu málsgrein. 

Ný ríkisstjórn kominn í gang. talið er að þau ætli sér í heimsreisu og ætla þau sér að fara í kringum heiminn á þeim 80 dögum sem þau hafa.

Afhverju að fara í heimsreisu? þá hefur maður engan stað að fara í næsta fríi.

Skólinn er víst byrjaður og hefur það alveg farið framhjá mér. En hef þó mætt í hana af gömlum ávana og er það einungis tilviljunum háð að ég mæti í rétta tíma. Kreppusvartsýnisþunglyndi heldur ennþá að hrjá nemendur jafnt sem kennara og eru daglegir klapp tímar þar sem viðskiptafræðinemar leggjast á göngum skólans og aðrir nemendur klappa okkur og hugga.

 Keypti mér batterý um daginn þau fylgdu ekki með þannig að ég varð að kaupa þau aftur.

Sálfræðinga sem vantar verkefni eru beðnir að snúa sér að Anfield í Liverpool. Spænski þjónninn er farinn að klikkast mér til mikillar skemmtunar.

Þrífarar, já þið heyrðuð rétt þrífarar dagsins koma hér. En þeir eru Dimitar Berbatov leikmaður Manchester United, Andy Garcia leikarinn sem allir þekkja og elska, og síðast en ekki síst Mark Strong sem lék Archie í RocknRolla

                                  

Nenni ekki að hafa þetta lengra í bili

Traustjón Sigurvin Hilmarsdóttir 
Trausti Sigurđur Hilmisson
1 athugasemd

Stjórnleysi

26. janúar 2009 klukkan 20:09
Algert stjórnleysi á sér nú stað hér á Íslandi (eyja í norður íshafi) eftir að ingibjörg Sólrún Geisladóttir og G.Hilmar Haarde ákvaðu að slíta sambandi, en samband þeirra lauk á sama hátt og það hófst með rennblautum kossi. Að sögn Geirs var hann með kökk í hálsinum eftir þessi slit. Núna er bara að bíða og sjá hvað gerist í framhaldinu, en fljótt þarf að leysa úr þessum vanda ef vel skal til vanda að leysa annan vanda sem kannski felst í því að vanda ekki kveðurnar til vandamanna, ekki vandamálið. Það er nú upp á borði að ekki er allt borðliggjandi í þessum málum og mála þarf borðið upp á nýtt til að tryggja betri tíma með mat á borðum landsmanna sem svelta hafa þurft sig til þess að ná endalausum endum saman (innsk. höfundar: á ekki við um mig). Annars vil ég óska þessu ágæta fólki skjótum bata.

Ein af þeim lausnum sem hafa skotið upp rótum hér á landi er sjálfsþurftarbúskapur og eru menn á suðvestur horni landsins þar manna duglegastir við. Þar rækta menn allt sem þeir þurfa og ber þar helst að nefna ræktun á grasi sem í fyrstu sýnist saklaus iðja bændra en um er að ræða háólöglega iðju sem tekist hefur að festa rótum sínum í bílskúrum landsins. Stjórnarflokkar landsins eru samt að beita sér fyrir þvi að gera þessa iðju löglega og leggja nú mikið uppúr grasrótarstarfi sínu. Lögreglan hefur í nógu að snúast við að varpa ljósi á þessa rækt, sem er reyndar skrýtið enda eru lampar af dýrari gerðinni notaðir við ræktun grasins, svo auðvelt er að kasta ljósi á þessa á annars yfirlýstu iðjun. Reyndar eru ræktendur taldir vel árásargjarnir sökum öfundar en þeir telja grasið grænna hinum megin. Þetta er svo sem ekki eina ólölegi sjálfsþurftarbúskapurinn en mörg lyfjafyrirtæki eru að skjóta upp kollinum og framleiða þau hinar ýmsu pillur en það er önnur saga og ég ætla að pilla mér frá þessu tali mínu á því. 

Ég er ekki háður bremsuvökva því ég get alltaf stoppað 

Annars er ég búinn að fá annan sófa í íbúðina og fjölgar þar með mögulegum svefnstöðum fyrir mig en ég vil halda öllum möguleikum opnum hvað varðar staði til svefns. Auk þess veldur það því að ég get boðið í enn fjölmennari partý og mun ég héðan í frá bjóða tveim fleirum í samkomur hér. Ljóst er að mikið fleiri vildu komast en gátu á galakvöldið síðasta hjá mér sem er öfugt við no clothes partýið sem ég hélt en þar komu fleiri en vildu. En vil samt láta vita að ekkert verður af árlega bingókvöldinu þar sem of margir létust í fyrra. En reynt verður að koma með eitthvað kvöld í staðinn þar sem bingóarmar og vinkuskinkur geta mætt og skemmt sér.

sá frétt um daginn:

A new middle east crisis erupted last night as Dubai Television was refused permission to broadcast 'The Flintstones'.

A spokesman for the channel said....

'A claim was made that people in Dubai would not understand the humour, but we know for a fact that people in Abu Dhabi Do.'

Ætlaði að kaupa mér könguló um daginn en sökum þess að þær eru svo dýrar í gæludýrabúðum ætla ég bara að finna  hana á vefnum.

smá glaðningur. Hér er brot úr útvarpsþætti sem Ricky Gervais var með og tæknistjórinn var svolítið spes þannig að Ricky gerði hann að stjörnu og hann fékk að fara með svokallaðar monkey news og fleira, mæli með að þið tjékkið á ricky gervais podcastinu þar sem Karl Pilkington (tæknistjórinn) fer á kostum.

   

Kv. Trausti
Trausti Sigurđur Hilmisson
2 athugasemdir

Would a fly without wings be called a walk?

18. janúar 2009 klukkan 22:48
Orðið langt síðan síðast. Reyni að vera örari í skriftum mínum. 

Sjólendingar eru orðnar verulega vinsælar hjá flugmönnum í dag og eru flugmenn farnir að svífast einskins í þeirri iðju sinni og skiptir engu máli hvort þeir sé með fulla þotu farþega eður ei. Þeir vilja bara stinga sér til sunds, enda er það víst dulinn þrá flugmanna að verða skipstjórar, og öfugt. Margur skipstjórinn langar að vera flugmenn, enda sér maður trillurnar fljúga fram af öldunum einungis til að upplifa það í 2 sekúndur hvernig það er að fljúga. Svona er hægt að sameina tvö störf í eitt. Fleiri dæmi um það er þegar fallhlífastökkvari langar líka að vera kafari, þá fer hann í teygjustökk fyrir ofan sjó og fer með hausinn undir yfirborðið, sem ætti að kallast undirborð, hef samt ekki hugmynd hvað borð hefur með það að gera.

Ísland er lítið búið að breytast á síðustu dögum. Sama kreppu- banka- og stjórnarvitleysa virðist hrjá landið. Stjórnin með skít upp á bak og stjórnarandstæðan komin með skítin upp á haus. Alveg ótrúlegt að stjórnarandstæðan sé ekki búinn gera betri hluti í ljósi "tækifæris" þeirra til þess að velta stjórninni úr sessi. Ég ætla að stofna minn eigin flokk, þar sem engin "pólitíkusar" fá tækifæri heldur eru menn ráðnir af flokknum til að setjast á þing. Ef flokkurinn fær menn á þing þá auglýsir flokkurinn eftir þingmönnum og er hæfasti aðilinn ráðinn, til dæmis, háksólaprófessor í hagfræði, stjórnmálafræðingur, skipulagsfræðingur og þaðan af götunum. Ekki mætti sitja tvö tímabil í röð, nema með undanþágu ef að til dæmis ekki tækist að ráða nógu hæfan í staðinn. Þingmennirnir væru sínir eigin herrar og myndu ekki lúta að því sem flokkurinn vildi. Ef flokkurinn þyrfti að taka afstöðu þá yrði það gert með kosningu allra í flokknum eða landsmönnum öllum. Nei bara smá hugmynd.

Skólinn kominn á fullt eða svo gott sem, enn er maður að reyna ná að temja sér góðar svefnvenjur, en það virðist ætla að verða þrautinni þyngri, alltof langt frí sem ég fékk.

Hugum að viðskiptafræðingum, hendið kornum útá svalir þar sem þeir geta reynt að vera á undan fuglunum sem og bankamönnum.

Hver er munurinn á stærðfræðingi og tölfræðingi? Stærðfræðingurinn spyr þig hvort viljir franskar með þessu en tölfræðingurinn spyr hvort þú viljir poka undir vörunar.

Er það á minni könnu að koma með kaffi?

Hvað kallast úreltir hamborgarar? Eldri borgarar.

Þarf nú að veiða sér til matar?
Líkt og gert er í Qatar.
Maturinn orðin rándýr
best að skjóta eitt hreindýr



Reyni að vera duglegri að skrifa

Kv. Háttvirtur forseti ritunarráðs trausti.bloggar.is og sameiningartákn tvískinnunga Trausti
 
Trausti Sigurđur Hilmisson
2 athugasemdir

ţiđ segiđ ţađ

08. janúar 2009 klukkan 00:00
Núna er maður kominn með smjörþefinn af 2009, var að vonast eftir annarri lykt, en smjörþefurinn verður að duga, frekar en að drepast, er, nóg, komið, af, kommum,. Árið hingað til er búið að vera blandið, Þar sem góðu og slæmu fréttirnar koma frá öllum áttum. En er ekki málið að horfa á gleði fréttir frekar en þær slæmu, jú ég held það. 

Þann fjórða mældi ég af mér. En þá leið akkurat 23 ár síðan mamma gaut. Út kom þetta undur fagra barn, sem lítið er búið að breytast ennþá grenjandi og sofandi til skiptis og jafnvel bæði í einu. Vel heppnuð afmælisveisla var haldin ekki neins staðar, en fréttir hafa mér borist frá Nepal að þar hafi veisluhöld farið úr böndum, en þau halda Traustajól þar þann fjórða til að fagna að ég kom í heiminn, enda strangtrúaðir á mig.

Mótmæli halda áfram eins og margt hafi í skorist. Nú hafa mótmælendur sem og aðrar endur tekið að á því að ráðast á blásaklaust fólk á götum úti (samt á þessu landi) og hafa menn eins og Óli Klemenzzz og bróðir hans besta skin eins saklausir og góðir menn þeir eru að fela sig fyrir mótmælendum, enda vilja þeir ekki þurfa að verjast árásum gegn þessum ómennsku mótmælendum. Enda hér menn sem myndu ekki gera flugu mein. 

Alltaf koma misleiðinleg orð upp í umræðum landsins og ég sagði frá því orðatiltæki að slá skjaldborg um eitthvað væri nett ofnotað. Ný orð eru orðin vinsæl einnig en orð eins og froða og skríl eru að gera allt vitlaust og menn teljast vera miklir ræðumenn og vel að máli farinn ef þeir ná að setja þessi orð einhverstaðar inn. 
Ég bara skil ekki hvað þessi skrílslæti og froðusnakk gera fyrir annars ágætar ræður, legg ég til að þessi orð verði með öllu bönnuð.

Nú er svo komið að þeir sem hafa tryggustu atvinnuna eru skottulæknar. Best er að fara glugga í grasalækningabækur ef maður þarf læknishjálp enda vel skorið niður í uppskurði. Það er samt vel falið leyndarmál á göngum spítala, allavegana þeirra sem enn eru starfræktandi, að plástur lækni allt, sel það ekki dýrara en ég keypti það. Sem er ekki mikið enda keypti ég það á ekki neitt.

Ingibjörg Sólrún Gíslatökudóttir fordæmir Ísrael fyrir að ráðast að Palestínumönnum á Gaza, Ísrael hefur umsvifalaust dregið her sinn til baka enda hræðast Gyðingar fátt meira en Ingu Sollu.
Mads Gilbert er orðin helsti fréttaritari vesturlandsþjóðana frá ástandinu á Gaza, og hefur hann gert það að fullu starfi og er hættur að lækna Palestínumenn enda geti hann ekki gert allt saman einn. En Mads hefur verið fúll að undanförnu vegna þess að vínber sem hann átti hefur horfið á undraverðan hátt og greinilega er verið að borða það núna og mun Mads gera kvikmynd um það sem mun heita, Whats eating Gilberts grape? Talið er að Leonardo DiCaprio og Johnny Depp munu taka að sér aðahlutverkin. 

Bráðum fer skólinn að byrja á ný. Þó svo að jólafríið hafi verið gott og sérstaklega gott að geta hætt að læra myrkrana á milli fyrir próf, þá sakna ég skólans og get ekki byrjað eftir að hefja nám á nýjan leik. Er landafræði landnám?

Takk fyrir að lesa. 

tustrai
 
Trausti Sigurđur Hilmisson
2 athugasemdir